Efnisyfirlit
Fréttagátt
Timamótafyrirlestur um evruna
Sænski hagfræðingurinn Stefan de Vylder ræddi framtíð evrunnar á opnum fundi Heimssýnar og Ísafoldar föstudaginn 20. ágúst í Öskju, nátturufræðihúsi Háskóla Íslands í Vatnsmýri. Fyrirlesturinn bókstaflega jarðaði röksemdir þeirra sem telja hag Íslands best borgið með evru sem gjaldmiðil.
Stefan de Vylder lauk doktorsprófi í hagfræði frá Viðskiptaháskólanum í Stokkhólmi og hefur starfað við kennslu, rannsóknir og ráðgjöf.
Hér eru slóðir á fyrirlesturinn annars vegar og umræður hins vegar.
Athugasemd frá Heimssýn vegna skoðanakönnunar fyrir samtökin Sterkara Ísland
Ljóst er að stuðningur við aðildarviðræður við Evrópusambandið hefur dregist verulega saman samkvæmt nýrri skoðanakönnun sem Capacent gerði fyrir samtökin Sterkara Ísland og birt er í Fréttablaðinu í dag. Samkvæmt könnuninni er meirihluti andvígur aðildarviðræðum eða 45,5% á móti 38,8% sem eru þeim hlynnt.
Stuðningur við aðildarviðræður var síðast kannaður í nóvember 2009 af Háskólanum á Bifröst fyrir Stöð 2. Þá var stuðningur við þær um 50% en andstaðan 43%. Samkvæmt því er ljóst að stuðningurinn hefur dregist saman um rúm 11% frá því í nóvember á síðasta ári.
Krónan eða evran?
Sænski hagfræðingurinn Stefan de Vylder ræðir stöðu krónunnar og framtíð evrunnar á opnum fundi Heimssýnar og Ísafoldar
föstudaginn 20. ágúst kl. 17:00 í stofu N - 132 í Öskju, nátturufræðihúsi Háskóla Íslands í Vatnsmýri.
Stefan de Vylder lauk doktorsprófi í hagfræði frá Viðskiptaháskólanum í Stokkhólmi og hefur starfað við kennslu, rannsóknir og ráðgjöf.
Fundurinn er öllum opinn og aðgangurinn er ókeypis.
Áskorun Ísafoldar; dragið umsóknina tilbaka
Forsendubrestur er á umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu. Alþingi ber að draga umsóknina tilbaka, segir í bréfi Ísaforldar, félags ungs fólks gegn ESB-aðild, til alþingismanna. Í bréfinu er vísað til fyrirliggjandi þingsályktunar um að alþingi dragi umsóknina tilbaka. Þingmenn úr öllum flokkum utan Samfylkingar eru flutningsmenn tillögunnar.
ESB óttast að Íslendingar fari að dæmi Norðmanna
Fréttavefur Morgunblaðsins fjallar um það í dag að ráðamenn Evrópusambandsins hafi af því vaxandi áhyggjur að Íslendingar fari að dæmi Norðmanna og hafni því að ganga í sambandið. Smám saman hafa þeir verið að átta sig á því að Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, hefur teymt þá á asnaeyrunum og sagt þeim ósatt um afstöðu þjóðarinnar og stuðning ríkisstjórnarinnar við málið. Þeir kunna honum vafalaust litlar þakkir fyrir.
ESB skiptir sér af veiðum Íslendinga í eigin lögsögu
Evrópusambandið hefur hótað Íslendingum og Færeyingum að sambandið muni íhuga allar leiðir til þess að koma í veg fyrir að þjóðirnar tvær haldi áfram að veiða makríl í eigin lögsögum. ESB telur sig eiga makrílinn og viðurkennir ekki að hann finnist í íslenskri eða færeyskri lögsögu en þangað hefur hann leitað í miklum mæli að undanförnu vegna að hafið hefur hlýnað á þeim slóðum.
Engin breyting á stefnu LÍÚ í Evrópumálum
Formaður Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ), Adolf Guðmundsson, hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem hann áréttar að engin stefnubreyting hafi orðið á afstöðu LÍÚ eða hans sjálfs til inngöngu í Evrópusambandið. Hann sé á móti inngöngu, telur engar líkur á að hægt yrði að ná viðunandi samningum um inngöngu í sambandið og að best væri ef umsóknin um inngöngu yrði dregin til baka.
Spánverjar telja að þeir væru betur settir án evrunnar
Samkvæmt nýrri skoðanakönnun sem gerð var á vegum Evrópusambandsins telja 54% Spánverja að þeir hefðu verið betur í stakk búnir að sigrast á þeim alvarlegu efnahagserfiðleikum sem geysa á Spáni með gamla sjálfstæða gjaldmiðilinn sinn, pesetann, að vopni en evruna. Talsmaður sambandsins sagði af því tilefni að þetta sýndi það eitt að spænskur almenningur hefði "ekki skilið kosti evrunnar."
Evrópusambandið mun reyna að blekkja Íslendinga
Daniel Hannan, þingmaður breska Íhaldsflokksins á Evrópuþinginu, var staddur hér á landi á dögunum og flutti m.a. erindi á fjölmennum fundi sem Heimdallur, félag ungra sjálfstæðismanna, hélt sl. föstudag 16. júlí. Þar færði hann rök fyrir því hvers vegna Íslendingar ættu ekki að ganga í Evrópusambandið og að hagsmunum Íslands væri best borgið utan sambandsins.
Evrópusambandið fær stöðu á við ríki innan SÞ
Ríki Evrópusambandsins hafa samþykkt að farið verði fram á það við allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna að sambandið fái hliðstæða stöðu á samkomum þeirra og ríki. Þannig getir t.a.m. forseti Evrópusambandsins ávarpað þær með sama hætti og t.d. forseti Bandaríkjanna eða hver annar þjóðarleiðtogi. Eins og fyrirkomulagið er í dag hefur sambandið sömu stöðu gagnvart SÞ og t.a.m. Atlantshafsbandalagið (NATO) og Arababandalagið.
Ísafold mótmælir afskiptum Evrópusambandsins
Ísafold - félag ungs fólks gegn ESB-aðild lýsir yfir ónægju sinni með yfirlýsingu Stefan Füle, stækkunarstjóra Evrópusambandsins, þess efnis að ESB muni leggja fram fé til að framkvæma svokallaða kynningaráætlun sína. Þessu lýsti Füle yfir, eftir að hafa lýst yfir áhyggjum vegna ágreinings Íslendinga og lítils stuðnings almennings við umsóknina. Þessa fjárveitingu, samanlagt 4 m.a. er tæpast hægt að telja sem peningagjöf, þar sem íslensk stjórnvöld eru skuldbundin til að leggja fé á móti. Ef kynningarefni um Evrópusambandið á að hafa einhvern minnsta trúverðugleika ætti sambandið sjálft ekki að taka þátt í að semja slíkt efni. Er það skoðun Ísafoldar að Evrópusambandið hafi fullmikil afskipti af íslenskum innanríkismálum með áróðursstarfsemi sinni hér.
Stjórn Ísafoldar
Höfnum ESB - útifundur 16. júlí
Rauður vettvangur boðar til útifundar á Lækjartorgi föstudaginn 16. júlí kl. 17 undir yfirskriftinni ,,Höfnum ESB” Tilefni fundarins er það að ár er liðið frá því umsókn um aðild að Evrópusambandinu var knúin í gegn á Alþingi.
Tilgangur fundarins er sá að varpa ljósi á þær hættur sem felast í aðild að ESB og því aðlögunarferli sem er gangi þar að lútandi. Og jafnframt að hvetja til samstöðu þjóðarinnar um baráttu gegn innlimun landsins í Evrópusambandið.
Ræðumenn: Anna Ólafsdóttir Björnsson, tölvunarfræðingur og stjórnarmaður í Heimssýn; Rakel Sigurgeirsdóttir, framhaldsskólakennari; Þorvaldur Þorvaldsson, trésmiður og formaður Rauðs vettvangs
Fundarstjóri: Vésteinn Valgarðsson, sagnfræðingur og stjórnarmaður í Rauðum vettvangi
Tékkar lítt spenntir fyrir evrunni
Nýr seðlabankastjóri Tékklands, Miroslav Singer, segir að óvissan í kringum evrusvæðið sé svo mikil í kjölfar skuldavalda Grikklands að ekkert vit sé í að velta fyrir sér upptöku evrunnar. "Ég hef enga hugmynd um það hversu langan tíma það tekur að leysa úr vandamálum evrusvæðisins," sagði hann samkvæmt Wall Street Journal og bætti við að þar til að því kæmi væri einfaldlega of margt óljóst til þess að hann gæti sagt til um það hvort það yrði tékknesku efnahagslífi til framdráttar að taka upp evru.
Traust á samtökum gegn ESB-aðild
Samkvæmt skoðanakönnun sem Capacent gerði á dögunum um Evrópumál eru hagsmunasamtök gegn aðild að Evrópusambandinu í fjórða sæti af 13 yfir þá aðila sem fólk treystir til þess að upplýsa og fræða sig um kosti og galla slíkrar aðildar. Athygli vekur að hagsmunasamtök með aðild að Evrópusambandinu eru hins vegar í áttunda sæti á listanum.
Vill alla olíuvinnslu undir yfirstjórn ESB
Gunther Öttinger, ráðherra orkumála í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, hefur kallað eftir því að sambandinu verði falið að hafa yfirstjórn með allri olíuvinnslu í ríkjum þess í kjölfar olíuslyssins á Mexíkóflóa. Evrópusambandið sæi þar með m.a. um að gefa út leyfi til olíuvinnslu í stað ríkjanna og eftirlit með allri slíkri starfsemi innan sambandsins.
Enn ítrekað að Icesave sé forsenda ESB
Þing Evrópusambandsins samþykkti í dag ályktun þar sem því er fagnað að leiðtogaráð Evrópusambandsins skyldi leggja blessun sína yfir aðildarviðræður við Ísland þann 17. júní sl., á þjóðhátíðardag Íslands. Ennfremur var lögð áhersla á að viðræðurnar, sem eru hluti aðlögunarferlis Íslands að sambandinu sem er í fullum gangi, hæfust sem fyrst.
ESB vill fiskinn en ekki skuldirnar
Fréttavefur Morgunblaðsins fjallaði um það sl. fimmtudag að Nigel Farage, þingmaður breska stjórnmálaflokksins UK Independence Party á Evrópusambandsþinginu, hafi skrifað á heimasíðu flokksins að það þyrfti ekkert að velkjast í vafa um að það væru fiskimið Íslendinga sem Evrópusambandið hefði augastað á og væri fyrst og fremst ástæðan fyrir áhuga sambandsins á inngöngu Íslands í það. Það væru ekki skuldir landsins sem sóst væri eftir.
Meirihluti Eista vill ekki taka upp evruna
Fréttavefur Morgunblaðsins greinir frá því í gær að meirihluti Eista vilji ekki evruna samkvæmt nýrri skoðanakönnun og ennfremur að meirihluti vilji að þjóðaratkvæði verði haldið um það hvort evran komi í stað eistnesku krónunnar. Stjórnvöld í Eistlandi hafa hins vegar ekki í huga að halda slíkta kosningu en stefnt er að því að evran verði tekin upp í landinu á næsta ári.
Mikill meirihluti Íslendinga vill sem fyrr ekki ganga í ESB
Samkvæmt nýjum þjóðarpúsli Capacent vill mikill meirihluti Íslendinga ekki ganga í Evrópusambandið, 60% vilja það ekki en 26% eru því hlynnt. Þessi skoðanakönnun er í samræmi við aðrar kannanir sem gerðar hafa verið undanfarið ár. Mikill meirihluti Íslendinga vill ekki ganga í ESB, myndi greiða atkvæði gegn inngöngu í sambandið í þjóðaratkvæði og vill að umsóknin um inngöngu verði dregin til baka.
VG ætlar að endurskoða ESB-umsóknina
Flokksráðsfundur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs samþykki um helgina að umsókn ríkisstjórnarinnar um inngöngu í Evrópusambandið yrði tekin til gagngerrar endurskoðunar og að tillaga um að umsóknin yrði dregin til baka yrði vísað til málefnaþings sem til stendur að halda næsta haust. Að lokum var anstaða VG við inngöngu í ESB ítrekuð.

