Efnisyfirlit
ESB
Sjálfstæðisflokkurinn krefst þess að ESB-umsóknin verði dregin til baka
Landsfundur Sjálfstæðisflokksins samþykkti í dag stjórnmálaályktun þar sem m.a. kemur fram að flokkurinn krefjist þess að umsóknin um inngöngu Íslands í Evrópusambandið verði dregin til baka án tafar. Flutningsmaður tillögunnar var Hallgrímur Viðar Arnarsson og var hún samþykkt með afgerandi hætti. Fyrri tillögum sem ætlað var að friða minnihluta Evrópusambandssinna á landsfundinum var hins vegar hafnað.
Sífellt fleiri Danir vilja ekki evruna
Fréttavefur Morgunblaðsins greinir frá því í dag að andstaða við upptöku evru í Danmörku aukist hratt. Er þar vitnað í frétt á viðskiptavef Berlingske Tidende þar sem fjallað er um nýja skoðanakönnun sem gerð var fyrir Danske Bank. Samkvæmt henni eru 32,1% danskra kjósenda hlynnt upptöku evrunnar í stað dönsku krónunnar á meðan 47,8% eru því andvíg.
Verður evrusvæðinu skipt í tvennt?
Breska dagblaðið The Daily Telegraph hefur eftir háttsettum embættismanni hjá Evrópusambandinu í dag að frönsk og þýsk stjórnvöld íhugi nú alvarlega þann möguleika að skipta evrusvæðinu í tvennt. Í annars vegar evrusvæði sem yrði myndað af Frakklandi, Þýskalandi, Hollandi, Austurríki og Finnlandi og hins vegar svæði sem yrði skipað veikari evruríkjum eins og t.a.m. Grikklandi, Ítalíu, Spáni, Portúgal, Írlandi.
Íslendingar: Til hamingju með þjóðhátíðardaginn!
Heimssýn óskar landsmönnum öllum til hamingju með þjóðhátíðardaginn. Í dag eru 66 ár liðin frá því að Ísland varð lýðveldi þann 17. júní árið 1944 og Íslendingar tóku á ný öll sín mál í eigin hendur eftir nær sjö aldir undir erlendri stjórn. En baráttunni fyrir sjálfstæði landsins lauk ekki þá, þeirri baráttu mun aldrei ljúka. Eftir að stjórn landsins var komið aftur að fullu í hendur Íslendinga hefur sjálfstæðisbaráttan snúist um að varðveita sjálfstæðið og standa vörð um það gegn ásælni þeirra sem vilja gera það að engu. Megi Ísland og íslenska þjóðin verða áfram sjálfstæð og fullvalda og hafa ástæðu til þess að halda áfram að fagna frelsi sínu á 17. júní ár hvert um ókomna framtíð.
Íslendingar: Til hamingju með sjálfstæðið!
Heimssýn óskar landsmönnum öllum til hamingju með þjóðhátíðardaginn. Í dag eru 66 ár liðin frá því að Ísland varð á ný sjálfstætt ríki þann 17. júní árið 1944 eftir nær sjö aldir undir erlendri stjórn. En baráttunni fyrir sjálfstæði landsins lauk ekki þá, þeirri baráttu mun aldrei ljúka. Eftir að stjórn landsins var komið aftur í hendur Íslendinga hefur sjálfstæðisbaráttan snúist um að varðveita sjálfstæðið og standa vörð um það gegn ásælni þeirra sem vilja gera það að engu. Megi Ísland og íslenska þjóðin verða áfram sjálfstæð og fullvalda og hafa ástæðu til þess að halda áfram að fagna frelsi sínu á 17. júní ár hvert um ókomna framtíð.
Drögum ESB-umsóknina til baka
Framkvæmdastjórn Heimssýnar, hreyfingar sjálfstæðissinna í Evrópumálum, fagnar tillögu að þingsályktun sem um að Ísland dragi tilbaka umsókn um aðild að Evrópusambandinu. Engar haldbærar forsendur eru fyrir umsókninni, hvorki á Alþingi né meðal þjóðarinnar. Aðeins einn stjórnmálaflokkur, Samfylkingin, er með aðild að ESB á stefnuskrá sinni. Flokkar með samtals 70 prósent kjörfylgi hafa lýst andstöðu sinni við inngöngu í ESB. Skoðanakannanir sýna margítrekað að milli 60-70 prósent þjóðarinnar er andvíg inngöngu. Í gær birtist skoðanakönnun þar sem kemur fram að 70 prósent þeirra sem afstöðu tóku vilja draga umsóknina tilbaka.
Drögum umsóknina tilbaka
Framkvæmdastjórn Heimssýnar, hreyfingar sjálfstæðissinna í Evrópumálum, fagnar tillögu að þingsályktun sem um að Ísland dragi tilbaka umsókn um aðild að Evrópusambandinu. Engar haldbærar forsendur eru fyrir umsókninni, hvorki á alþingi né meðal þjóðarinnar.
Aðeins einn stjórnmálaflokkur, Samfylkingin, er með aðild að ESB á stefnuskrá sinni. Flokkar með samtals 70 prósent kjörfylgi hafa lýst andstöðu sinni við inngöngu í ESB. Skoðanakannanir sýna margítrekað að milli 60-70 prósent þjóðarinnar er andvíg inngöngu. Í dag birtist skoðanakönnun þar sem kemur fram að 70 prósent þeirra sem afstöðu tóku vilja draga umsóknina tilbaka.
Verði umsókninni haldið til streitu eru vaxandi líkur á að samskipti Íslands og ESB bíði skaða af. Í Evrópu er spurt hvers vegna ríkisstjórn Íslands fer ekki eftir lýðræðislegum vilja þjóðarinnar. Hvorki Íslandi né Evrópusambandinu er greiði gerður með því að taka fé og fyrirhöfn í starf sem engar líkur eru á að leiði til aðildar Íslands.
Mikill meirihluta vill draga ESB-umsóknina til baka
Samkvæmt nýrri skoðanakönnun sem Capacent vann fyrir hugveituna Andríki og birt var í dag vilja 57,6% landsmanna draga umsóknina um inngöngu í Evrópusambandið til baka en aðeins 24,3% vilja halda henni til streitu. Ef aðeins er miðað við þá sem tóku afstöðu með eða á móti eru rúm 70% á því að hætta eigi við umsóknina. Þetta er sama hlutfall og myndi hafna inngöngu í Evrópusambandið samkvæmt könnun sem Capacent vann fyrir Samtök iðnaðarins í febrúar og birt var í byrjun mars.
Þjóðverjar vilja Ísland í ESB vegna auðlindanna
Einn helsti sérfræðingur Þjóðverja í málefnum Norðurlanda, Carsten Schymik, segir litlar líkur á að Ísland gangi í Evrópusambandið. Ástæðan sé sú að ekki sé eining á meðal íslenskra stjórnmálamanna um inngöngu í sambandið og andstöðu almennings við slíkt skref. Hann segir að Evrópusambandið vilji gjarnan að ríki sem gangi í sambandið sýni vilja til þess að aðlagast því til lengri og skemmri tíma. Efasemdir hafi því vaknað um "getu" Íslands til þess að laga sig að Evrópusambandinu.
Hagkerfi evruríkja eru ekki sjálfstæð lengur
Að sögn Jean-Claude Juncker, sem fer fyrir fjármálaráðherrum evruríkjanna, heyra sjálfstæð hagkerfi ríkja evrusvæðisins sögunni til. Þetta kom fram í viðtali við Wall Street Journal. „Við höfum ekki lært nóg um sameiginlega stjórn á sameiginlegum gjaldmiðli. Of mörg hinna 16 ríkja [á evrusvæðinu] hegða sér eins og sjálfstæð hagkerfi, en sjálfstæð hagkerfi eru ekki lengur til staðar. Við tilheyrum nú hagkerfi sem er krýnt hinum sameiginlega gjaldmiðli,“ sagði Juncker.
Vaxandi líkur á að evrusvæðið liðist í sundur
Framkvæmdastjóri hjá bandaríska fjármálafyrirtækinu Roubini Global Economics, Gina Sanchez, segir að líkurnar á að Efnahags- og myntbandalag Evrópu liðist í sundur hafi aukist. „Við gerum ráð fyrir vaxandi möguleikum á að evrusvæðið liðist í sundur,“ sagði hún í samtali við Reuters fréttaveituna. Sanchez vildi þó ekki setja nákvæma tölu á möguleikana á að evrusvæðið liðaðist í sundur en sagði að fyrirtækið teldi minni en 1% möguleika á auðveldri lausn vandamála svæðisins.
Verður evran dauð eftir fimm ár?
Samkvæmt könnun sem breska dagblaðið Sunday Telegraph lét gera á meðal 25 virtustu hagfræðinga Bretlands verður evran dauð innan fimm ára. Einn hagfræðinganna er svo svartsýnn að hann telur óvíst hvort evran lifir af næstu vikuna. Af þessum 25 töldu tólf að evran ætti alls ekki eftir að lifa af á meðan átta töldu að hún myndi gera það. Rest treysti sér ekki til þess að úttala sig um málið.
Svíar vilja ekki evruna
Mikill meirihluti Svía vill ekki evruna samkvæmt nýrri skoðanakönnun í Svíþjóð sem gerð var fyrir dagblaðið Dagens Industri. Samkvæmt könnuninni eru 61% andvíg því að sænsku krónunni verði skipt út fyrir evruna á meðan aðeins 25% eru því hlynnt. 14% tóku ekki afstöðu. Séu óákveðnir ekki teknir með vilja um 71% Svía ekki taka upp evruna samkvæmt þessari könnun. Í sambærilegri könnun frá því á síðasta ári voru 49% hlynnt upptöku evrunnar en 44% á móti því.
Forseti ESB vill sameiginlega efnahagsstjórn
Forseti Evrópusambandsins, Herman van Rompuy, styður þá hugmynd að komið verði á einni efnahagsstjórn fyrir evrusvæðið eins og frönsk stjórnvöld hafa m.a. lagt áherslu á. Frakkar hafa lengi kallað eftir því að slíkt skref yrði tekið en það hefur til þessa mætt tortryggni hjá sumum af ríkjum sambandsins, einkum Þýskalandi stærsta efnahagsveldi þess.

