Efnisyfirlit
Fólk Fyrir Fólk
Við erum hópur fólks sem erum ákveðin í því að gera allt sem í okkar valdi stendur til að koma á persónukosningu á Íslandi og með það markmið að fólk eigi að ráða eins miklu og frekast er unnt.
Ég vil hvetja þig að lesa drög af stefnu hópsins og til gamans höfum við skannað inn 20 ára gamla stefnuskrá okkar en hópurinn kallaði sig þá Fram Fara Flokkinn, en hann varð aldrei til vegna dreitinga laga.
Við höfum ákveðið að bjóða fram til sveitastjórna vorið 2010 og er búið að ákveða að bjóða fram í Reykjavík og vonumst við til að það finnist ljósberar í hverjum bæ til að taka upp fána lýðræðis og koma valdinu til fólksins.
Stefnan er sú að fólk verði gert virkt í gegnum sinn fulltrúa og teljum við að það sé besta leiðin til að sýna fram á að vilji fólks sé að koma á persónubundinni stjórn sé að byrja á sveitastjórnar kosningum og að hvetja fólk til að niðurraða og stroka út. Þetta verður fyrsta skref til þverpólitískra persónu kosningar sem aldrei verður hægt að koma á nema fólk láti hinn pólitíska heim vita skoðun sína.
Það er nefnilega enginn vilji flokka eða fylkinga að fólkið fái að ráða og þetta er sú leið sem við bjóðum til breytinga og er okkar hjartans mál.
Það á ekki neinu máli að skipta í stærri málum hvaða álit kjörinn maður hefur, þar á alltaf fólkið að hafa síðasta orðið sem dæmi tek ég Reykjavíkurflugvöll þar á engin fámenn klíka að ráða hvort hann verður eða fer, því ræður fólkið.
Vertu ekki að gagnrýna eftirá hvað hefði mátt betur fara, það er auðvelt og lítilmannlegt, stattu uppúr.
Það eru komin mörg stefnu mál en heildarstefna verður ekki tekin án þín.
Eitt þeirra mála sem verða samt örugglega í brennidepli er að nota til fulls sem við eigum nú þegar Orkuveitan! Reykvíkingar eiga Orkuveituna og er hún búin að leggja ljósleiðara inn á 80 til 90% heimila á stór Reykjavíkursvæðinu og þess vegna eigum við að nota okkur það sem búið er að eyða í hvort sem okkur líkar framkvæmdin eða ekki.
Þannig verður hægt að bjóða upp á þúsundir sjónvarps og útvarpsmiðla á samt þeim miljónum netmiðla sem til eru og símtöl um allan heim fyrir smápening fyrir hverja fjölskyldu og GSM síma fyrir lítilræði. Þessi tækni er til staðar og verður framkvæmdum lokið 2012 en flestir geta notað þetta nú þegar. Þetta á Reykjavíkurborg nú þegar og okkur ber skilda til að nýta það til lækkunar á kostnaði heimilanna.
Munum við nota netið sem mest í allri kynningu og umfjöllum, það er okkar eina leið sökum þess að allt annað yrði okkur um megn fjárhagslega. Vil égþess vegna hvetja þig til að láta vita af okkur eins víða og þér er mögulegt. fréttatilkynning verður send út síðar.
Guð blessi Ísland

