Efnisyfirlit
Jesús rak út víxlarana
(Symbolic)
Aðeins einu sinni á æfi sinni á þessari jörð, beitti Kristur ofbeldi.
Það var þegar hann rak víxlarana út úr musterinu. í Jóhannesar
guðspjalli segir að hann hafi búið til svipu til að reka þá
út með. Í Markúsar guðspjalli segir: Og þeir koma til Jerúsalem,
og hann gekk inn í helgidóminn og tók til að reka út þá sem
seldu og þá sem keyptu í helgidóminum, og hratt um borðum víxlaranna
og stólum dúfnasalanna.
Það virðist sem víxlararnir hafi á þessum fjarlægu dögum (en
þó svo nærri oss) gert samning við prestana um að selja dúfur,
sauðfénað og önnur fórnardýr í musterinu og ennfremur fengið
einkaleyfi til þess, að gefa út sérstaka peninga til að nota við þessi
viðskifti, svo fórnardýrin fengust aðeins fyrir þá peninga. Þegar
trúaðir komu því til Jerúsalem í tilbeiðslu skyni, gátu þeir ekki
keypt fórnardýrin, sem þeir ætluðu að gefa, nema fyrir þessa sérstöku
skrítilegu peninga víxlaranna. En til þess að öðlast þá, urðu
þeir að greiða tvo peninga af sínum eigin gjaldeyri, fyrir hvern
einn pening víxlaranna.
Það var þessi f jársýsla, sem hleypti svo skapinu upp í Jesú, að
hann greip til ofbeldisverka.
Á sér nú nokkuð líkt þessu stað? Ekki mun alveg laust við það.
Það var einmitt þetta sama peninga-einveldi, sem erkibiskupinn af
Kantaraborg var nýlega að mótmæla, er hann réðist á fyrirkomulagið
í peningamálum sem heimurinn á nú við að búa, og kallaði
það viðhald fátækarinnar, óárans og afturfarar í þjóðfélaginu, auk
margs annars miklu Ljótara — svo sem synda, glæpa og stríða.
Nokkru eftir að Jesús rak víxlaranan út, var hann krossfestur.
Lincoln forseti, sem hótaði að reka þá út, var einnig myrtur.
Hefirðu nokkurn tíma spurt sjálfan þig um hvers eðlis peningaeinokunin
sé, sem yfir lífi einstaklinga og þjóða ræður eins og
grimmur harðstjóri út um allan heim? Eða hefir þér nokkru sinni
dottið í hug skyldleiki hennar og aðferðar víxlaranna forðum? Að
líkindum ekki. En það eru kristninni í heiminum léleg meðmæli,
því ef trú vor ætti nokkuð skylt við stefnu Krists, væri fyrir löngu
búið að reka peningaeinokunina með svipum út úr musteri
siðmenningarinnar í heiminum. — Þýtt
- Frettahaukur's blog
- Login or register to post comments

